Yfirlýsingar frá Víkingi og Sölva

Sölvi Geir Ottesen harmar viðbrögð sín.
Sölvi Geir Ottesen harmar viðbrögð sín. mbl.is/Árni Sæberg

Knattspyrnudeild Víkings í Reykjavík hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna dómgæslunnar í leik liðsins gegn KR í Pepsi Max-deild karla í fótbolta á laugardaginn var. Sölvi Geir Ottesen, Kári Árnason og Halldór Smári Sigurðsson fengu allir beint rautt spjald í leiknum. 

Eru Víkingar ósáttir við öll spjöldin og skora þeir á að dómaranefnd KSÍ fari vel yfir málin. Þá segir í yfirlýsingunni að framkoma Sölva Geirs Ottesen í leiknum sé óásættanleg en hann brást afar illa við sínum brottrekstri. 

Sölvi sendi sömuleiðis frá sér yfirlýsingu og harmar hann framgöngu sína eftir leikinn, en hann sagði Einari Inga Jóhannssyni fjórða dómara m.a. að „fokka sér“ er hann gekk af velli. 

Yfirlýsingarnar má sjá hér fyrir neðan. 

Yfirlýsing frá Knd. Víkings og Sölva Geir Ottesen

Knattspyrnudeild Víkings lýsir yfir furðu sinni með framgöngu dómara í leik KR og Víkings á laugardag og skorar á dómaranefnd KSÍ að fara rækilega yfir málin. Að sama skapi teljum við framkomu Sölva Geirs Ottesen í kjölfar rauða spjaldsins sem hann fékk í leiknum óásættanlega. Það er ljóst að félagið verður án þriggja sterkra leikmanna á miðvikudag í leiknum gegn Val þar sem allir leikmennirnir eru á leið í leikbann. Það er skoðun okkar að dómarinn hafi gert mistök þegar hann lyfti rauða spjaldinu í öllum tilfellum. Mistök sem geta reynst félaginu ákaflega dýr.

Sölvi Geir Ottesen:

„Ég harma framgöngu mína eftir að hafa fengið brottvísun í leik KR og Víkings sl. laugardagskvöld. Í hita leiksins snarreiddist ég þar sem ég taldi mig órétti beittan eftir að leikmaður KR ýtti mér svo ég féll á annan leikmann liðsins. Dómari leiksins mat það sem viljaverk að vinstri handleggur minn hafi lent í anditi leikmanns KR sem lá á vellinum. Ég átti hins vegar ekkert sökótt við leikmanninn, ásetningurinn var enginn og ég var aðeins að reyna að verjast falli.

Þrátt fyrir öll málsatvik á leikmaður með mína reynslu, og fyrirliði Víkings, hins vegar að vita betur og viðbrögð mín í hita leiksins voru mér, liðsfélögum og Knattspyrnufélagi Víkings ekki til sóma.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert