Garcia var Leiknismönnum dýrmætur

Leiknismenn eru komnir með sex stig í síðustu tveimur leikjum …
Leiknismenn eru komnir með sex stig í síðustu tveimur leikjum sínum. Ljósmynd/@Leiknirfask

Leiknir frá Fáskrúðsfirði vann í kvöld annan leik sinn í röð í 1. deild karla í knattspyrnu, Lengjudeildinni, en Leiknismenn lögðu þá Þrótt úr Reykjavík að velli í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði, 1:0.

Spænski framherjinn Daniel Garcia skoraði sigurmarkið á 68. mínútu en hann var Leiknisliðinu gríðarlega mikilvægur í fyrra þegar það vann óvæntan sigur í 2. deildarkeppninni.

Leiknismenn eru þá komnir með 6 stig og sigla upp í miðja deild en Þróttarar sitja eftir stigalausir á botni deildarinnar ásamt Magna frá Grenivík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert