Íslandsmeistarar Vals töpuðu stigum í fyrsta sinn í sumar er þeir gerðu 1:1-jafntefli gegn Fylki í 6. umferð Íslandsmóts kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni, á Hlíðarenda í kvöld.
Það dró til tíðinda strax á fyrstu mínútu leiksins þegar Elísa Viðarsdóttir reif niður Sólveigu Jóhannesdóttur Larsen inn í vítateig og fékk dæmda á sig vítaspyrnu. Elísa fékk í kjölfarið á sig beint rautt spjald og Fylkiskonur að fá sannkallaða draumabyrjun. Bryndís Arna Níelsdóttir steig á vítapunktinn en átti slaka spyrnu og Sandra Sigurðardóttir varði vel, skutlaði sér til hægri. Staðan því áfram markalaus en Valsarar þurftu að spila manni færri í 89. mínútur.
Það voru engu að síður gestirnir úr Árbænum sem tóku forystuna og aftur var Sólveig Larsen allt í öllu. Hún var þá með knöttinn á vinstri kantinum, stakk sér inn í teig milli varnarmanna Vals og skoraði með hnitmiðuðu skoti í nærhornið. Virkilega vel gert hjá henni en varnarleikur Valsarar var engu að síður ekki til útflutnings og þarna virðist Pétur Pétursson, þjálfari Vals, hafa áttað sig á því að breytingar væru þarfar.
Málfríður Anna Eiríksdóttir kom inn á stuttu síðar í staðinn fyrir sóknarmanninn Ásdísi Karen Halldórsdóttur en mögulega hefði þessi skipting átt að koma miklu fyrr. Valsarar náðu strax betri tökum á leiknum og jöfnuðu metin á 24. mínútu. Málfríður átti þá fyrirgjöf inn í vítateig og Elín Metta Jensen mætti á fjærstöngina og skoraði úr annarri tilraun, þrumaði knettinum upp í þaknetið. Staðan 1:1 og þannig var hún í hálfleik.
Bæði lið reyndu í síðari hálfleik en sköpuðu sér engan aragrúa af færum. Gríðarlega agaðir Valsarar spiluðu aftarlega og gáfu engin færi á sér, manni færri eða ekki og hinumegin var Elín Metta einmanna í sókninni. Hún var engu að síður drjúg, hljóp manna mest og djöflaðist í varnarmönnum Fylkis allan leikinn. Að lokum urðu liðin að sættast á jafntefli sem enginn er sennilega fullsáttur við.
Valsarar töpuðu dýrmætum stigum. Meistararnir misstigu sig aðeins tvisvar allt Íslandsmótið í fyrra, gerðu jafntefli í tvígang gegn Breiðabliki sem endaði í öðru sæti. Það getur því reynst dýrkeypt að tapa stigum í toppbaráttunni, þó það sé bara einu sinni. Það er eiginlega ekki annað hægt en að minnast hvað gerðist á síðustu leiktíð þegar Valsarar fóru ósigraðir í gegnum tímabilið og urðu meistarar en Breiðablik tapaði sömuleiðis ekki leik. Liðin skildu jöfn í báðum viðureignum sínum en jafntefli Blika gegn Þór/KA reyndist hafa úrslitaáhrif að lokum. Áhugavert verður að sjá næsta leik þessara liða, þar sem þau einmitt mætast en það er orðið ansi langt síðan Valsarar og Blikar töpuðu leik á Íslandsmótinu. Valur hefur ekki tapað deildarleik síðan 17. september 2018, gegn Þór/KA, en liðið á Hlíðarenda hefur hreinlega verið ódrepandi.
Fylkiskonur voru manni fleiri svo gott sem allan leikinn og geta alveg leyft sér að vera örlítið svekktar með niðurstöðuna. Fyrirfram hefðu þær eflaust unað stigi á heimavelli meistaranna en úr því sem komið var hefðu Árbæingar vilja hirða stigin þrjú. Þær hafa þó komið hressilega á óvart í sumar. Vinna Selfyssinga, tapa í hörkuleik gegn Blikum í bikarnum og ná svo stigi gegn meisturunum á þeirra eigin heimavelli í kvöld. Það er ýmislegt í þetta Fylkislið spunnið. „Við erum að sýna að Fylkir er eitt af þessum stóru liðum. Við vorum ekkert að kalla eftir athygli, við bara látum verkin tala,“ sagði Sólveig Jóhannesdóttir Larsen í samtali við mbl.is að leik loknum.