Íþróttir með snertingu leyfðar á ný

Úr leik Vals og Stjörnunnar.
Úr leik Vals og Stjörnunnar. Ljósmynd/Þorsteinn Ólafs

Samkvæmt nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar verða nálægðartakmörk í íþróttum rýmkuð frá og með 14. ágúst. Því er ljóst að Íslandsmót meistaraflokka sem og keppni í 2. og 3. flokkum karla og kvenna í knattspyrnu geti hafist á ný.

Knattspyrnusamband Íslands hefur nú staðfest að keppni getur hafist á ný en sambandið bíður enn eftir upplýsingum frá yfirvöldum um hvort áhorfendur verði leyfðir á leikjum eða ekki.

Í auglýsingunni, sem birt er á heimasíðu Stjórnarráðs Íslands, segir:

Nálægðartakmörkun í íþróttum

Þrátt fyrir meginregluna um 2 metra nálægðartakmörkun verða snertingar heimilar milli íþróttafólks á æfingum og í keppnum. Aftur á móti skal virða 2 metra regluna í búningsklefum og á öðrum svæðum utan keppni og æfinga. Aðrir, meðal annars þjálfarar, starfsmenn og sjálfboðaliðar, skulu ávallt virða 2 metra regluna. Íþrótta- og ólympíusamband Íslands skal setja sérsamböndum sínum nánari reglur í samráði við sóttvarnalækni, meðal annars um einstaklingsbundnar sóttvarnir, sótthreinsun búnaðar, framkvæmd æfinga og keppna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert