Kórdrengir nálgast fyrstu deildina

Kórdrengir eru í efsta sæti 2. deildarinnar þegar fjórar umferðir …
Kórdrengir eru í efsta sæti 2. deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir af tímabilinu. Ljósmynd/Kórdrengir

Kórdrengir styrktu stöðu sína á toppi 2. deildar karla í knattspyrnu þegar liðið vann 3:1-heimasigur gegn Selfossi á Framvelli í Safamýri í kvöld.

Hákon Ingi Einarsson og Albert Brynjar Ingason skoruðu fyrir Kórdrengi í fyrri hálfleik áður en Hrvoje Tokic minnkaði muninn fyrir Selfoss á 51. mínútu. Jordan Damachoua innsiglaði svo sigur Kórdrengja með marki á 72. mínútu og þar við sat.

Kórdrengir eru með 43 stig í efsta sæti deildarinnar og hafa nú 6 stiga forskot á Selfoss sem er í þriðja sætinu með 37 stig.

Þá er Þróttur úr Vogum komið í annað sæti deildarinnar eftir 3:1-sigur gegn Fjarðabyggð í Fjarðabyggðarhöllinni. Ethan James Patterson, Andri Jónasson og Alexander Helgason skoruðu mörk Þróttara í fyrri hálfleik en Rubén Lozano minnkaði muninn fyrir Fjarðabyggð á 74. mínútu.

Þróttarar eru með 37 stig í öðru sæti deildarinnar en Fjarðabyggð er í sjöunda sætinu með 24 stig.

Njarðvík stimplaði sig rækilega inn í toppbaráttuna með 2:1-útisigri gegn Víði í Garði þar sem Bergþór Ingi Smárason og Ivan Prskalo skoruðu mörk Njarðvíkur en Nathan Ward skoraði einar mark Víðis.

Njarðvík er með 36 stig í fjórða sæti deildarinnar, stigi minna en Þróttur og Selfoss, en Víðir er í tíunda sætinu með 13 stig.

Þá er Völsungur komið af botni deildarinnar eftir 2:1-útisigur gegn KF í Boganum þar sem Sæþór Olgeirsson skoraði bæði mörk Völsungs úr vítaspyrnum en Oumar Diouck skoraði eina mark KF-manna.

Völsungur er með 11 stig í ellefta sæti deildarinnar en KF er með 25 stig í sjötta sætinu.

Elías Dofri Gylfason og Jón Vilhelm Ákason voru á skotskónum fyrir Kára sem vann 2:1-sigur gegn Dalvík/Reyni á Dalvík en Áki Sölvason skoraði eina mark Dalvíkur/Reynis strax á 4. mínútu.

Kári er með 22 stig í áttunda sæti deildarinnar en Dalvík/Reynir vermir neðsta sæti deildarinnar með 10 stig, 4 stigum frá öruggu sæti.

Þróttur Vogum er komið upp í annað sæti deildarinnar eftir …
Þróttur Vogum er komið upp í annað sæti deildarinnar eftir góðan útisigur. Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert