Síðustu heimaleikir Fjölnis í Egilshöllinni

Fjölnir er eitt af fimm liðum Pepsi Max-deildar karla sem …
Fjölnir er eitt af fimm liðum Pepsi Max-deildar karla sem enn leikur heimaleikina á grasi. Tveir síðustu leikirnir í ár verða hins vegar spilaðir innanhúss. Myndin er úr leik Fjölnis og KA á Extra-vellinum. Ljósmynd/Íris

Fjölnismenn munu spila tvo síðustu heimaleiki sína í Pepsi Max-deild karla í Egilshöllinni en KSÍ skýrði frá þessu í dag.

Um er að ræða heimaleik gegn KR í 19. umferðinni sem verður spilaður fimmtudagskvöldið 15. október kl. 19.15, en hefði annars verið leikinn kl. 15 um daginn, og svo heimaleik gegn HK í 21. og næstsíðustu umferðinni laugardaginn 24. október.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert