Þróttur semur við fimm lykilleikmenn

Fimmmenningarnir sem hafa samið við Þrótt um að leika áfram …
Fimmmenningarnir sem hafa samið við Þrótt um að leika áfram með liðinu. Ljósmynd/Þróttur

Þróttur hefur samið við fimm af lykilleikmönnum kvennaliðs félagsins í knattspyrnu, sem á síðasta ári náði sínum besta árangri í sögunni með því að enda í fimmta sæti úrvalsdeildarinnar, Pepsi Max-deildar kvenna.

Þetta eru fyrirliðinn Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, sem var kjörin íþróttamaður Þróttar árið 2020, Andrea Rut Bjarnadóttir, Jelena Tinna Kujundzic, Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir og Linda Líf Boama, en þær eru allar ungar að árum og fæddar á árunum 2000 til 2003.

Elísabet og Andrea léku samt 15 af 16 leikjum liðsins í deildinni og þær Álfhildur og Jelena 14 leiki hvor. Linda Líf, sem skoraði 22 mörk fyrir liðið í 1. deildinni 2019, missti hins vegar af meirihluta tímabilsins vegna meiðsla. Flestar þeirra hafa spilað með yngri landsliðum Íslands.

Í tilkynningu frá Þrótti segir að samningar við þessa leikmenn séu þáttur í uppbyggingu leikmannahóps kvennaliðs Þróttar og mikilvægt skref á þeirri leið sem mörkuð var með góðum árangri liðsins síðastliðið sumar.  

„Þetta eru frábær tíðindi fyrir okkur Þróttara, fimm frábærir leikmenn sem þarna skrifa undir og ætla að halda áfram að byggja upp liðið okkar í meistaraflokki kvenna til lengri tíma,“ segir Kristján Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar Þróttar, enn fremur í tilkynningunni frá félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert