Ísland mætir meðal annars Portúgal og Grikklandi

Íslenska 21-árs landsliðið er á leið í lokakeppni EM og …
Íslenska 21-árs landsliðið er á leið í lokakeppni EM og svo byrjar ný undankeppni í haust. mbl.is/Kristinn Magnússon

Íslenska 21-árs landsliðið í knattspyrnu karla leikur í sex liða riðli í undankeppni Evrópumótsins 2023 en dregið var í riðla núna fyrir hádegið.

Núverandi keppni, EM 2021, er enn í gangi en Ísland komst áfram úr riðlakeppninni og leikur í úrslitakeppni í Slóveníu og Ungverjalandi í lok mars.

Ísland var í þriðja styrkleikaflokki af sex í drættinum í dag, var raðað í 20. sæti af 53 þjóðum sem taka þátt í undankeppninni.

Ísland er í D-riðli og mætir Portúgal úr fyrsta styrkleikaflokki, Grikklandi úr öðrum flokki, Hvíta-Rússlandi úr fjórða flokki, Kýpur úr fimmta flokki og Liechtenstein úr sjötta styrkleikaflokki.

Davíð Snorri Jónasson var á dögunum ráðinn þjálfari 21-árs landsliðsins í stað Arnars Þórs Viðarssonar, eftir að sá síðarnefndi var ráðinn þjálfari A-landsliðs karla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert