Diljá kölluð inn í landsliðshópinn

Diljá Ýr Zomers verður kölluð inn í landsliðshópinn í dag.
Diljá Ýr Zomers verður kölluð inn í landsliðshópinn í dag. Ljósmynd/Häcken

Diljá Ýr Zomers, leikmaður sænska úrvalsdeildarfélagsins Häcken, verður kölluð inn í leikmannahóp íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu.

Hlín Eiríksdóttir, leikmaður Piteå í Svíþjóð, er að glíma við meiðsli og getur því ekki tekið þátt í leiknum gegn Hollandi í undankeppni HM 2023 næstkomandi þriðjudag.

„Við köllum nýjan leikmann fyrir Hlín í dag. Það kom bakslag hjá henni í dag. Við köllum inn Diljá Ýr í hennar stað,“ sagði Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari á Teams-fjarfundi með blaðamönnum í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert