Ætla að gera mitt besta til að halda stöðunni

Guðný Árnadóttir í leiknum gegn Hollandi í síðasta mánuði.
Guðný Árnadóttir í leiknum gegn Hollandi í síðasta mánuði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðný Árnadóttir, leikmaður AC Milan á Ítalíu og íslenska kvennalandsliðsins, er miðvörður að upplagi en er þrátt fyrir það hugsuð sem hægri bakvörður hjá landsliðinu.

„Við erum nokkrar að berjast um þessa stöðu en af því að ég er hugsuð sem hægri bakvörður vil ég klárlega gera mitt besta til að halda henni. Ég þarf bara að standa mig í leikjum og á æfingum til þess að gera það,“ sagði Guðný á Teams-fjarfundi með blaðamönnum í dag.

Hún lék í stöðunni í fyrsta sinn í 0:2 tapinu gegn Hollandi í undankeppni HM 2023 á Laugardalsvelli í síðasta mánuði. „Í fyrri hálfleik var ég svolítið týnd, var ekki alveg rétt staðsett alltaf en svo fannst mér ég bara vinna mig inn í leikinn og leið betur þegar leið á leikinn.

Það er kannski svona klassískt fyrir fyrsta leik í þessari stöðu,“ sagði Guðný er hún var spurð hvað henni hafi þótt um eigin frammistöðu í stöðunni í þeim leik.

„Mér líst vel á að spila hægri bakvörð. Ég er að spila hægra megin í þriggja manna vörn úti þannig að það er svona blanda af hægri bakverði og miðverði. Það er gaman að fá að spila og gaman að fá að prófa nýjar stöður,“ bætti hún við.

Gott að geta leyst nokkrar stöður

Guðný sagði að þegar Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari hafi viðrað hugmyndina um að spila stöðuna hafi henni litist vel á það, ekki síst þar sem það myndi bara hjálpa henni sem knattspyrnukonu að geta leyst nokkrar stöður.

„Mér leist alveg strax vel á það. Ef ég fæ að spila er ég ánægð. Mér finnst líka gott að geta leyst fleiri en eina stöðu upp á framtíðina og að geta fengið fleiri leiki. Við erum með góða leikmenn í mörgum stöðum og þá er gott að geta leyst fleiri en eina stöðu.“

Ísland á næst leik gegn Tékklandi í C-riðli undankeppninnar á föstudag og var Guðný spurð út í það verkefni.

„Tékkarnir líta bara vel út af því sem við höfum séð. Vel spilandi lið. Þær vilja halda boltanum og eru með sterka leikmenn í sínu liði.

Við þurfum bara að mæta klárar í þann leik og spila okkar besta leik til þess að ná í úrslit. Við þurfum að fara í þennan leik og ná í þrjú stig og þá erum við í góðri stöðu myndi ég segja,“ sagði hún.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert