Átta valdir í fyrsta sinn í landsliðið

Viktor Karl Einarsson og Damir Muminovic eru í íslenska landsliðshópnum.
Viktor Karl Einarsson og Damir Muminovic eru í íslenska landsliðshópnum. Ljósmynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson

Átta nýliðar eru í íslenska landsliðshópnum í knattspyrnu sem mætir Úganda og Suður-Kóreu í vináttulandsleikjum í Antalya í Tyrklandi í janúar.

Leikurinn við Úganda fer fram 12. janúar og leikurinn gegn Suður-Kóreu hinn 15. janúar en ekki er um hefðbundna landsleikjadaga hjá FIFA að ræða og því eru margir óreyndir leikmenn í hópnum að þessu sinni.

Finnur Tómas Pálmason, Damir Muminovic, Atli Barkarson, Viktor Karl Einarsson, Valdimar Þór Ingimundarson, Kristall Máni Ingason, Viktor Örlygur Andrason og Brynjólfur Andersen Willumsson eru allir valdir í hópinn í fyrsta sinn.

Markverðirnir Patrik Sigurður Gunnarsson og Hákon Rafn Valdimarsson hafa áður verið valdir í A-landsliðið en eiga ennþá eftir að spila sinn fyrsta leik fyrir Ísland.

Jón Daði Böðvarsson er langreyndasti leikmaðurinn í hópnum en hann á 60 A-landsleiki að baki og Arnór Ingvi  Traustason kemur næstur með 41 landsleik.

Það er mikilvægt ár framundan hjá okkur og áríðandi að nýta hvert einasta tækifæri sem við fáum til að stilla saman strengina, skoða leikmenn og halda áfram að byggja upp okkar lið til framtíðar,“ sagði Arnar Þór Viðarsson, þjálfari liðsins.

„Leikirnir í þessum janúarglugga hafa reynst vel í gegnum tíðina og ég er viss um að svo verður líka núna. Leikmenn þurfa að halda áfram að taka skref á sínum ferli og við þurfum jafnframt að halda áfram að taka skref sem landslið.

Það eru margir áhugaverðir leikmenn í þessum hópi og ég hlakka til að vinna með þeim öllum. Þetta er alvöru gluggi til að stimpla sig inn fyrir komandi verkefni,“ bætti landsliðsþjálfarinn við.

Landsliðshópur Íslands:

Markverðir:

Ingvar Jónsson - Víkingur R. - 8 leikir
Patrik Sigurður Gunnarsson - Brentford
Hákon Rafn Valdimarsson - Elfsborg

Aðrir leikmenn:

Finnur Tómas Pálmason - Norrköping
Ísak Óli Ólafsson - Esbjerg - 1 leikur
Damir Muminovic - Breiðablik
Ari Leifsson - Strömsgodset - 1 leikur
Atli Barkarson - Víkingur R.
Guðmundur Þórarinsson - Án félags - 12 leikir
Valgeir Lunddal Friðriksson - Häcken - 1 leikur
Alfons Sampsted - Bodö/Glimt - 7 leikir
Viktor Karl Einarsson - Breiðablik
Valdimar Þór Ingimundarson - Strömsgodset
Kristall Máni Ingason - Víkingur R.
Stefán Teitur Þórðarson - Silkeborg - 7 leikir, 1 mark
Viktor Örlygur Andrason - Víkingur R.
Alex Þór Hauksson - Öster - 3 leikir
Höskuldur Gunnlaugsson - Breiðablik - 1 leikur
Arnór Ingvi Traustason - New England Revolution - 41 leikur, 5 mörk
Gísli Eyjólfsson - Breiðablik - 2 leikir
Viðar Ari Jónsson - Sandefjord - 5 leikir
Jón Daði Böðvarsson - Millwall - 60 leikir, 3 mörk
Sveinn Aron Guðjohnsen - Elfsborg - 8 leikir
Brynjólfur Andersen Willumsson - Kristiansund

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert