Leiknismenn styrkja sig

Róbert Hauksson er kominn til Leiknis.
Róbert Hauksson er kominn til Leiknis. Ljósmynd/Leiknir

Knattspyrnumaðurinn Róbert Hauksson hefur gengið í raðir Leiknis úr Reykjavík frá Þrótti, einnig úr Reykjavík. Hann skrifaði í dag undir samning sem gildir til ársins 2024.

Róbert skoraði sex mörk í 20 leikjum með Þrótti í 1. deildinni á síðustu leiktíð en gat ekki komið í veg fyrir fall liðsins niður í 2. deild.

Leiknir hafnaði í áttunda sæti úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og spilar því í efstu deild tvö sumur í röð í fyrsta skipti í sögu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert