Breiðablik fær 200 milljónir í arf

Forráðamenn og fyrirliðar við leiði Guðmundar Óskarssonar.
Forráðamenn og fyrirliðar við leiði Guðmundar Óskarssonar. Ljósmynd/Breiðablik

Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur fengið 200 milljónir króna í arf frá dyggum stuðningsmanni og fyrrverandi stjórnarmanni félagsins.

Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins en þar er sagt frá því að Guðmundur Eggert Óskarsson, sem lést snemma á síðasta ári, hafi ánafnað knattspyrnudeild Breiðabliks um 200 milljónum króna.

Um hann er m.a. sagt:

„Guðmundur var fæddur 29. apríl 1935, bjó alla ævi í Kópavogi og tók virkan þátt í margvíslegum félagsmálum í ungu og vaxandi bæjarfélagi, auk þess sem hann starfaði lengi hjá Kópavogskaupstað. Guðmundur starfaði um árabil fyrir knattspyrnudeildina, meðal annars sem gjaldkeri, og var gerður að heiðursfélaga Breiðabliks 1990.

Guðmundur ánafnaði í erfðaskrá rétt um 200 miljónum kr. til knattspyrnudeildar Breiðabliks. Fjármununum er ætlað að styrkja við knattspyrnudeildina og sérstaklega tekið fram að ,,skal sú fjárhæð sem kemur til arfs skiptast jafnt milli karla- og kvennadeildar.“

Þessi rausnarlega gjöf mun nýtast deildinni til að efla starf knattspyrnudeildar, en ekki er gert ráð fyrir að fjármunirnir verði nýttir í beinan rekstur, heldur til einstakra verkefna og framþróunar á starfi knattspyrnudeildar Breiðabliks.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert