Tvær breytingar á landsliðshópnum

Jóhann Berg Guðmundsson er mættur aftur í íslenska landsliðshópinn.
Jóhann Berg Guðmundsson er mættur aftur í íslenska landsliðshópinn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jóhann Berg Guðmundsson og Stefán Teitur Þórðarson eru báðir í leikmannahóp íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu sem mætir Slóvakíu og Portúgal í lokaleikjum sínum í undankeppni EM 2024.

Åge Hareide, þjálfari íslenska liðsins, tilkynnti leikmannahóp sinn í dag en liðið mætir Slóvakíu í Bratislava 15. nóvember og Portúgal í Lissabon 19. nóvember.

Þeir Jóhann Berg og Stefán Teitur koma inn í hópinn fyrir þá Andra Lucas Guðjohnsen og Júlíus Magnússon.

Ísland er með tíu stig í fjórða sæti riðilsins en Slóvakía er í öðru sætinu með 16 stig og Portúgal í því efsta með 24 stig eða fullt hús stiga og öruggt með sæti á EM.

Lúxemborg er í þriðja sætinu með 11 stig, Bosnía er í því fimmta með níu stig og Liechtenstein er án stiga í neðsta sætinu.

Landsliðshópur Íslands:

Markverðir:
Rúnar Alex Rúnarsson - Cardiff City - 27 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson - Elfsborg - 4 leikir
Elías Rafn Ólafsson - Mafra - 5 leikir

Varnarmenn:
Aron Einar Gunnarsson - Al Arabi - 102 leikir, 5 mörk
Guðmundur Þórarinsson - OFI Krít - 12 leikir
Hjörtur Hermannsson - Pisa - 26 leikir, 1 mark
Guðlaugur Victor Pálsson - Eupen - 40 leikir, 1 mark
Alfons Sampsted - Twente - 20 leikir
Sverrir Ingi Ingason - Midtjylland - 44 leikir, 3 mörk
Kolbeinn Birgir Finnsson - Lyngby - 6 leikir

Miðjumenn:
Ísak Bergmann Jóhannesson - Fortuna Düsseldorf - 22 leikir, 3 mörk
Hákon Arnar Haraldsson - Lille - 15 leikir, 3 mörk
Jóhann Berg Guðmundsson - Burnley - 88 leikir, 8 mörk
Arnór Ingvi Traustason - Norrköping - 51 leikur, 5 mörk
Gylfi Þór Sigurðsson - Lyngby - 80 leikir, 27 mörk
Willum Þór Willumsson - Go Ahead Eagles - 6 leikir
Kristian Nökkvi Hlynsson - Ajax
Stefán Teitur Þórðarson - Silkeborg - 17 leikir, 1 mark

Sóknarmenn:
Alfreð Finnbogason - Eupen - 71 leikur, 18 mörk
Jón Dagur Þorsteinsson - OH Leuven - 32 leikir, 4 mörk
Arnór Sigurðsson - Blackburn Rovers - 28 leikir, 2 mörk
Mikael Neville Anderson - AGF - 24 leikir, 2 mörk

Orri Steinn Óskarsson - FC Köbenhavn - 4 leikir, 1 mark

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert