Margrét Lára: Áttu engin svör

„Mér fannst City ekki eiga nein svör við því sem Aston Villa var að gera,“ sagði Margrét Lára Viðarsdóttir í Vellinum á Síminn Sport þegar rætt var um leik Aston Villa og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Aston Villa vann frábæran 1:0-sigur gegn Englandsmeisturunum í 15. umferð deildarinnar í gær en það var Leon Bailey sem skoraði sigurmarkið á 74. mínútu.

„Villa-liðið var orkumeira, kraftmeira og þeir nýttu sóknirnar sínar mjög vel,“ sagði Margrét Lára.

„Enn og aftur voru City-menn að lenda í vandræðum með skyndisóknir andstæðinga sinna,“ sagði Margrét Lára meðal annars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert