„Ég sat einhverja 70 skráða fundi vegna uppbyggingu nýs þjóðarleikvangs og þarfagreiningin í kringum þetta hefur verið gríðarleg,“ sagði Guðni Bergsson, frambjóðandi til formanns Knattspyrnusambands Íslands, í Dagmálum.
Guðni, sem er 58 ára gamall, er einn þeirra þriggja sem gefur kost á sér í formannsembættið ásamt þeim Vigni Má Þormóðssyni og Þorvaldi Örlygssyni.
Uppbygging nýs Þjóðarleikvangs hefur verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarin ár en Laugardalsvöllur er á undanþágu frá bæði FIFA og UEFA og hefur lítið sem ekkert gerst í málefnum Laugardalsvallar á undanförnum árum.
„Ég deili þessum pirringi með öðrum en þú þarft samt að halda áfram að taka samtalið,“ sagði Guðni.
„Stjórnmálamönnum verður áfram boðið á Laugardalsvöll og maður reynir þá frekar að taka samtalið, þar og þá, ef maður verður formaður,“ sagði Guðni meðal annars.
Viðtalið við Guðna í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.