FH hafnar í sjöunda sæti Bestu deildar kvenna í knattspyrnu á komandi keppnistímabili, samkvæmt spá Morgunblaðsins og mbl.is.
FH fékk 103 stig þegar atkvæði spámannanna voru lögð saman en þar voru gefin stig frá einu (fyrir 10. sætið) upp í tíu (fyrir fyrsta sætið). FH er 56 stigum fyrir ofan Fylki sem er spáð áttunda sæti og því er ekki gert ráð fyrir Hafnarfjarðarliðinu í fallbaráttu þótt það þurfi samkvæmt þessu að sætta sig við að komast ekki í efri hlutann þegar deildinni verður skipt í tvennt eftir hefðbundnar átján umferðir.
FH kom talsvert á óvart sem nýliði í deildinni í fyrra en endaði í sjötta sæti eftir að hafa verið um skeið í þriðja og fjórða sæti. Félagið hefur um árabil flakkað á milli tveggja efstu deildanna. Blómaskeið FH-liðsins var á fyrstu árum Íslandsmótsins þegar FH varð fyrsti Íslandsmeistari kvenna árið 1972 og hampaði meistaratitlinum fjórum sinnum á fyrstu fimm árunum.
Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópi FH frá því í fyrra en lykilmenn eins og fyrirliðarnir Shaina Ashouri og Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir, Esther Rós Arnarsdóttir, Colleen Kennedy, Arna Eiríksdóttir og Lillý Rut Hlynsdóttir eru farnar.
En sterkir leikmenn hafa komið í staðinn, Andrea Rán Hauksdóttir kemur til landsins á ný eftir dvöl í Bandaríkjunum og Mexíkó. Ída Marín Hermannsdóttir kemur frá Val ásamt Hönnu Kallmaier sem er að jafna sig eftir krossbandsslit í fyrra, og framherjinn Breukelen Woodard sem var markahæsti leikmaður Fram í 1. deildinni í fyrra bætist einnig í hópinn.
Guðni Eiríksson þjálfar FH áfram eins og hann hefur gert frá árinu 2019.
Komnar:
Hanna Kallmaier frá Val
18.4. Rammie Noel frá Bandaríkjunum
5.4. Andrea Rán Sæfeld Hauksdóttir frá Mazatlán (Mexíkó)
7.3. Breukelen Woodard frá Fram
3.2. Ída Marín Hermannsdóttir frá Val
1.2. Bryndís Halla Gunnarsdóttir frá Breiðabliki (lék með Augnabliki)
1.2. Valgerður Ósk Valsdóttir frá Breiðabliki (úr láni)
Farnar:
5.4. Shaina Ashouri í Víking R.
5.3. Hildur María Jónasdóttir í HK (lán)
5.3. Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir í Hauka
15.2. Colleen Kennedy í Cork City (Írlandi)
9.2. Margrét Ingþórsdóttir í Grindavík
8.2. Rachel Avant í Sturm Graz (Austurríki)
3.2. Esther Rós Arnarsdóttir í Stjörnuna
1.2. Arna Eiríksdóttir í Val (úr láni)
1.2. Lillý Rut Hlynsdóttir í Val (úr láni)
31.1. Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir í AGF (Danmörku)
Fyrstu leikir FH:
21.4. Tindastóll - FH
27.4. FH - Þór/KA
3.5. Breiðablik - FH
8.5. FH - Þróttur R.
14.5. Stjarnan - FH
Lokastaðan:
1 ??
2 ??
3 ??
4 ??
5 ??
6 ??
7 FH 103
8 Fylkir 47
9 Tindastóll 46
10 Keflavík 42