Núna klukkan 16 hófst úrslitaleikur KA og Víkings í bikarkeppni karla í knattspyrnu. Nálægt fimm þúsund áhorfendur eru á leiknum og mikil stemning í báðum stúkum vallarins.
Stuðningsmenn beggja félaga eru í aðalstúku vallarins en í nýrri stúkunni, hinum megin, eru Víkingar einnig fjölmennir og þeir eru í nokkrum meirihluta.
Ólafur Árdal, ljósmyndari mbl.is, tók meðfylgjandi myndir áður en leikurinn hófst.