„Þetta er sturlað,“ sagði KA-maðurinn Daníel Hafsteinsson eftir að hann varð bikarmeistari í fótbolta með uppeldisfélaginu í dag með sigri á Víkingi, 2:0, í bikarúrslitum á Laugardalsvelli.
„Þetta er ótrúlega gaman og verður bara skemmtilegra með kvöldinu held ég,“ bætti hann við.
KA var með 1:0 forystu í hálfleik og skoraði svo í blálok uppbótartímans. Daníel leið vel á meðan á leik stóð.
„Mér leið mjög vel. Leikplanið gekk mjög vel upp og mér leið vel á miðjunni þar sem ég var að spila. Auðvitað var maður samt smá stressaður því Víkingarnir hafa oft skorað seint á móti okkur í gegnum árin.
Þetta hefur verið besta liðið síðustu fimm ár eða svo. Það er geðveikt að vinna þetta lið sem er búið að vera fáránlega gott síðustu ár,“ sagði Daníel