Knattspyrnumaðurinn Björn Daníel Sverrisson, fyrirliði FH, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélagið sem gildir út næsta tímabil.
Björn Daníel er 34 ára gamall miðjumaður sem hefur skorað átta mörk í 21 leik í Bestu deildinni á tímabilinu.
Fyrri samningur hans átti að renna út í lok þessa tímabils en nú er ljóst að Björn Daníel mun halda kyrru fyrir í Hafnarfirðinum í að minnsta kosti eitt ár til viðbótar.