Góðar fréttir fyrir Stjörnuna

Guðmundur Kristjánsson verður hjá Stjörnunni næstu tvö ár.
Guðmundur Kristjánsson verður hjá Stjörnunni næstu tvö ár. Eyþór Árnason

Knattspyrnudeild Stjörnurnar og fyrirliðinn Guðmundur Kristjánsson hafa gert samkomulag um tveggja ára framlengingu á samningi leikmannsins.

Guðmundur hefur verið lykilmaður í liði Stjörnunnar síðan hann kom til félagsins frá FH fyrir síðasta tímabil.

„Við hjá Stjörnunni erum stolt af því að halda Gumma áfram hjá okkur og hlökkum til að sjá hann leiða liðið til frekari sigra og afreka á komandi árum,“ segir m.a. í yfirlýsingu félagsins.

Hann hefur leikið 16 leiki í Bestu deildinni á leiktíðinni. Hann lék 25 slíka á síðustu leiktíð og skoraði í þeim þrjú mörk.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert