Aron Einar Gunnarsson hefur gengið til liðs við félag í Katar en fotbolti.net greinir frá fregnunum. Aron Einar rifti samningi sínum við Þór eftir síðasta leik tímabilsins í 1. deild karla.
Félagið sem Aron gengur til liðs við leikur í Meistaradeild Asíu en þar mega fleiri erlendir leikmenn spila fyrir liðin heldur en í Katar.
Aron Einar gekk til liðs við Þór í sumar eftir átján ár erlendis og lék sex leiki með liðinu á lokaspretti 1. deildarinnar, en sagðist stefna út aftur til að komast í landsliðið á nýjan leik.