Aron Einar Gunnarsson mun spila fyrir katarska félagið Al-Gharafa en félagið tekur þátt í Meistaradeild Asíu.
Aron segir í viðtali við fótbolti.net að möguleiki sé að hann verði skráður í leikmannahóp liðsins í deildarkeppninni að auki en strangar reglur gilda um fjölda útlendinga í leikmannahópum liðanna í katörsku deildinni.
Aron Einar lék með Al-Arabi í Katar um fjögurra ára skeið og segir félagskiptin til Al-Gharafa koma til vegna tenginga hans við fótboltann í landinu.