Framararnir Alex Freyr Elísson, Guðmundur Magnússon og Þorri Stefán Þorbjörnsson verða ekki með Fram er liðið mætir KR á útivelli í neðri hluta Bestu deildarinnar í fótbolta á sunnudag.
Voru þeir allir úrskurðaðir í leikbann í dag vegna fjölda áminninga á tímabilinu. Alex Freyr hefur fengið tíu gul spjöld á leiktíðinni og þeir Guðmundur og Þorri fjögur hvor.
Þá verður Silas Songani ekki með Vestra er liðið leikur við HK á heimavelli í stórum leik í botnbaráttunni.
Axel Ingi Jóhannesson hjá Keflavík getur leikið með liðinu gegn Aftureldingu í úrslitum umspilsins um sæti í Bestu deildinni. Axel fékk beint rautt spjald fyrir að kýla leikmann ÍR í fyrri leik liðanna í undanúrslitum en sleppur með eins leiks bann.