Þorleifur Óskarsson hefur látið af störfum sem þjálfari kvennaliðs ÍR í knattspyrnu eftir þrjú ár við stjórnvölinn.
Þorleifur greindi frá því í samtali við Fótbolta.net að hann hafi nýtt sér riftunarákvæði í samningi sínum.
ÍR féll úr 1. deildinni í ár eftir að hafa komist upp úr 2. deild á síðasta ári.