Knattspyrnumaðurinn Róbert Hauksson er genginn til liðs við Fram frá Leikni úr Reykjavík.
Róbert, sem er 22 ára gamall, er uppalinn hjá Stjörnunni í Garðabæ en hann skrifaði undir tveggja ára samning í Úlfarsárdalnum.
Hann er uppalinn hjá Stjörnunni í Garðabæ en steig sín fyrstu skref í meistaraflokki með Þrótti úr Reykjavík.
Hann hefur leikið með Leikni frá árinu 2022 og á að baki 25 leiki í efstu deild og þrjú mörk. Hann lék 15 leiki með Leikni í 1. deildinni í sumar og skoraði í þeim 5 mörk.
„Við hlökkum mikið til að sjá hann í bláu treyjunni og taka þátt í uppbyggingu karlaliðsins," segir meðal annars í tilkynningu Framarar.