Hornspyrnumark færði Blikum mikilvægan sigur

Kristinn Jónsson fagnar eftir að hafa komið Blikum yfir beint …
Kristinn Jónsson fagnar eftir að hafa komið Blikum yfir beint úr hornspyrnu í Kaplakrika í dag. Ólafur Árdal
Breiðablik er komið í efsta sæti Bestu deildar karla í fótbolta á ný eftir sigur á FH, 1:0, í 24. umferð deildarinnar í Kaplakrika í dag.

Breiðablik er þá komið með 55 stig í efsta sæti deildarinnar. Víkingar eiga eftir að spila gegn Val kl 19:15 í kvöld og geta þá endurheimt efsta sætið en Víkingar eru með 52 stig. FH-ingar eru áfram í sjötta sætinu með 33 stig.

Það var talsverður hiti í leikmönnum framan af fyrri hálfleik og alveg ljóst að mikið var í húfi fyrir bæði lið. Mikið jafnræði var á með liðunum og skiptust þau á að sækja, Breiðablik þó aðeins meira. Daði Freyr Arnarsson varði mark FH í dag og varði hann ágætlega í fyrri hálfleik.

Besta færi fyrri hálfeiks kom á 43. mínútu þegar Ísak Snær Þorvaldsson slapp í gegnum vörn FH, skaut að marki en Daði Freyr varði boltann í horn.

Önnur færi í hálfleiknum flokkast sem hálffæri en þó skal tekið fram að bæði liðin börðust vel í fyrri hálfleik.

Staðan í hálfleik 0:0.

Blikar mættu dýrvitlausir inn í seinni hálfleikinn og byrjuðu strax að ógna FH.

Á 47 mínútu fengu Blikar hornspyrnu. Boltinn hrökk fyrir Höskuld Gunnlaugsson alveg við mark FH sem skaut að marki en Daði bjargaði í horn.

Fimm mínútum seinna fengu leikmenn Breiðabliks aðra hornspyrnu og hana tók Kristinn Jónsson. Kristinn skoraði beint úr hornspyrnunni og staðan 1:0 fyrir Breiðablik.

Eftir þetta fór leikurinn í svipað mót og í fyrri hálfleik þar sem liðin sóttu til skiptis, Breiðablik þó meira og þau skiptust á hálffærum.

Á 78 mínútu leiksins varamaðurinn Davíð Ingvarsson sannkallað dauðafæri fyrir Blika en Daði Freyr Arnarsson varði vel í horn. Eins og fyrr segir sóttu Blikar meira í seinni hálfleik og voru líklegri til að bæta við marki en að fá á sig jöfnunarmark.

FH fékk ágætt færi á 89 mínútu þegar Ísak Óli Ólafsson komst upp að marki Blika en skot hans fór í hliðarnetið.

Lokatölur á Kaplakrikavelli 1:0 fyrir Breiðablik.
Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Þróttur R. 0:0 Þór/KA opna
90. mín. Leik lokið
Vestri 2:1 HK opna
90. mín. Sergine Modou Fall (Vestri) fær gult spjald
KR 7:1 Fram opna
90. mín. Orri Sigurjónsson (Fram) fær rautt spjald Keyrir í bakið á Aroni. Kjánalegt og hann veit upp á sig sökina. Hans annað gula spjald. Kom inn á sem varamaður fyrir seinni hálfleikinn.
Man. United 0:1 Tottenham opna
42. mín. Bruno Fernandes (Man. United) fær rautt spjald Jahér og hér, lengi getur vont versnað! Bruno fer í fáránlega tæklingu á Maddison og Kavanagh rífur upp rauða spjaldið. Ég held að VAR muni nú skoða þetta og breyta þessu í gult, sjáum til.
Fylkir 0:0 KA opna
Engir atburðir skráðir enn

Leiklýsing

FH 0:1 Breiðablik opna loka
90. mín. Fjórum mínútum bætt við venjulegan leiktíma í seinni hálfleik.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert