Vestri og HK mætast í 24. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Torfnesvelli á Ísafirði klukkan 14. Fylgst er með gangi mála í beinni textalýsingu hér á mbl.is.
HK er með 21 stig í 10. sæti deildarinnar og Vestri er með 19 stig í 11. sætinu þannig að þetta er einn af lykilleikjum fallbaráttunnar. KR er með 22 stig í níunda sæti og Fylkir 17 í neðsta sæti en þessi fjögur lið berjast um að halda velli í deildinni.