Vestri er komið úr fallsæti eftir glæsilegan, 2:1, endurkomusigur á HK á Ísafirði í Bestu deild karla í knattspyrnu í dag.
Vestri er með 22 stig í 10. Sæti og fer fyrir ofan HK sem dettur niður í fallsæti með 21 stig.
HK átti skot á markið strax á annarri mínútu en það tók Ívar Örn Jónsson rétt fyrir utan vítateig en William Eskelinen varði. Eftir það voru Vestra-menn líklegri til þess að komast yfir og fengu hættulegt færi á 23. mínútu.
Það kom há sending frá hægri á Gunnar Jónas Hauksson en Christoffer Petersen kom langt út úr markinu og vann boltann af Gunnari. Boltinn barst til Morten Ohlsen Hansen sem fór í skot á markið sem var tómt en það fór framhjá og staðan í hálfleik var 0:0.
HK-ingar komu af miklum krafti inn í seinni hálfleik og skoruðu strax á 54. mínútu en það skoraði Birnir Breki Burknason. Dagur Örn Fjelsted sendi boltann inn í teig, Birnir tróð sér fyrir framan varnarmann og stangaði boltann í netið.
Vestri jafnaði metin á 71. mínútu þegar HK-ingar sofnuðu á verðinum í hornspyrnu. Jeppe Pedersen fékk boltann eftir stutta hornspyrnu, lagði hann fyrir sig og þrumaði boltanum í fjærhornið og staðan 1:1.
Á 84. mínútu kom há sending inn á teig HK og þar voru tveir á móti tveimur. Eftir baráttu um boltann kom Þorsteinn Aron Antonsson með misheppnaða hreinsun sem fór beint á Andra Rúnar Bjarnason sem skoraði sigurmarkið og leikurinn endaði 2:1.
KR | 7:1 | Fram | |
---|---|---|---|
Keyrir í bakið á Aroni. Kjánalegt og hann veit upp á sig sökina. Hans annað gula spjald. Kom inn á sem varamaður fyrir seinni hálfleikinn. | Orri Sigurjónsson (Fram) fær rautt spjald