Íþróttadeild Morgunblaðsins og mbl.is heldur áfram að gramsa í myndasafni Morgunblaðsins og birta á mbl.is á laugardögum.
Markvarðahrellirinn frá Grindavík Alfreð Finnbogason tilkynnti á dögunum að knattspyrnuferlinum væri lokið en Alfreð lék síðast með Eupen í Belgíu.
Um fimmtán ár eru liðin frá því Alfreð kom fram á sjónarsviðið í meistaraflokki en hann var í leikmannahópi Breiðabliks sem varð bikarmeistari árið 2009. Sumarið eftir varð Breiðablik Íslandsmeistari í fyrsta skipti í karlaflokki í íþróttinni og var Alfreð þá í lykilhlutverki.
Meðfylgjandi mynd tók Eggert Jóhannesson í toppslag Breiðabliks og ÍBV á Kópavogsvellinum í ágúst 2010. Alfreð tryggði þá Blikum mikilvægt stig er hann jafnaði 1:1 fyrir framan rúmlega 3 þúsund áhorfendur. ÍBV barðist um titilinn við Breiðablik á þessu Íslandsmóti og var ÍBV undir stjórn Heimis Hallgrímssonar sem síðar stýrði Alfreð í landsliðinu.
„Eyjamönnum tókst þó ekki að verjast Alfreð Finnbogasyni enda standast fáir honum snúning í sumar. Alfreð er þyngdar sinnar virði í gulli fyrir Blika og það sannaðist í gærkvöldi,“ skrifaði Kristján Jónsson í umfjöllun um leikinn í Morgunblaðinu 17. ágúst.
Á mynd Eggerts er Alfreð kominn í færi hægra megin í vítateignum í uppbótartíma. Matt Garner sækir að honum og markvörðurinn Albert Sævarsson kemur út á móti. Alfreð lyfti boltanum yfir Albert en Andri Ólafsson fyrirliði ÍBV bjargaði á marklínu.
Alfreð er 35 ára gamall og lék sem atvinnumaður frá árinu 2010, með Lokeren og Eupen í Belgíu, Helsingborg í Svíþjóð, Heerenveen í Hollandi, Real Sociedad á Spáni, Olympiacos í Grikklandi og Lungby í Danmörku en hann lék síðan lengst með Augsburg í Þýskalandi, í sjö ár. Alfreð skoraði mark fyrir lið frá átta löndum í deildar-eða bikarleikjum sem er merkileg staðreynd.
Alfreð varð sumarið 2018 fyrstur íslenskra knattspyrnumanna til að skora í lokakeppni HM þegar hann skoraði í jafnteflisleiknum fræga gegn Argentínu í Moskvu.
Hér þarf á stikla á stóru á ferli Alfreðs en sem dæmi má nefna að enginn Íslendingur hefur skorað jafn margar þrennur í fimm sterkustu deildum Evrópu en Alfreð skoraði þrívegis þrennu fyrir Augsburg og gerði það raunar á aðeins tólf mánuðum.
Alfreð lék 73 A-landsleiki og skoraði í þeim 18 mörk. Hann lék einnig í lokakeppni EM 2016.
Alfreð hafnaði í 5. sæti í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins árið 2018 og í 7. sæti 2012 og 2013.