Knattspyrnumaðurinn Hreggviður Hermannsson er genginn til liðs við Keflavík frá nágrönnunum í Njarðvík.
Hreggviður er uppalinn Keflvíkingur, 24 ára gamall, en hann gekk í raðir Njarðvíkinga sumarið 2021 og hafði áður leikið með Víði í 2. deildinni, ásamt nokkrum leikjum með Keflavík í 1. deild árið 2019. Hann á að baki 87 leiki í 1. og 2. deild og hefur skorað í þeim tvö mörk.
Hreggviður er að upplagi bakvörður en getur leyst margar stöður á vellinum, samkvæmt tilkynningu Keflavíkur.