Veiran hjálpaði okkur líka á EM

„Það hefur verið lygilegt hvernig þjálfarateymið hefur tæklað öll þessi kórónuveirusmit á EM,“ sagði Hreiðar Levý Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður í handknattleik, í EM-uppgjöri Dagmála, frétta- og menningarlífsþætti Morgunblaðsins.

Alls hafa ellefu leikmenn íslenska liðsins greinst með kórónuveiruna á Evrópumótinu í Ungverjalandi og Slóvakíu.

Allir ellefu hafa verið í stórum hlutverkum innan liðsins undanfarin ár en á sama tíma hafa minni spámenn nýtt tækifærið til hins ýtrasta og spilað frábærlega í fjarveru lykilmanna.

„Strákarnir sem hafa komið inn í þetta hafa skilað sínu og það er líka komin ákveðin breidd í liðið núna,“ sagði Hreiðar.

„Eins og ég sagði áðan þá hefur kórónuveiran líka hjálpað okkur á þessu móti því það hafa aðrir leikmenn komið inn í þetta sem hefðu annars aldrei fengið þetta tækifæri og þetta hefur aukið breiddina í íslenska hópnum til muna,“ sagði Guðjón Guðmundsson, íþróttafréttamaður hjá Sýn, meðal annars fyrr í þættinum.

EM-uppgjör Dagmála má nálgast með því að smella hér.

Elvar Ásgeirsson hefur slegið í gegn á Evrópumótinu í Ungverjalandi …
Elvar Ásgeirsson hefur slegið í gegn á Evrópumótinu í Ungverjalandi og Slóvakíu. Ljósmynd/Szilvia Micheller
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert