Ísland vann Úkraínu, 27:24, í annarri umferð F-riðils EM 2024 í handknattleik kvenna í Innsbruck í Austurríki í kvöld. Er það fyrsti sigur íslenska kvennalandsliðsins á Evrópumóti í sögunni.
Ísland er í þriðja sæti riðilsins með tvö stig, jafnmörg og Þýskaland sæti ofar, og mætast liðin í hreinum úrslitaleik á þriðjudagskvöld um hvort þeirra fylgir Hollandi upp úr F-riðli og í milliriðil í Vín.
Leikurinn fór nokkuð rólega af stað en Ísland var með yfirhöndina þar sem vörnin stóð vel og Elín Jóna Þorsteinsdóttir lokaði markinu. Staðan var orðin 3:0 eftir fimm mínútna leik og tók Borys Chyzhov, þjálfari Úkraínu, leikhlé þegar í stað.
Við það lagaðist leikur úkraínska liðsins fyrst um sinn og tókst því að minnka muninn niður í eitt mark í stöðunni 4:3.
Ísland náði þá aftur yfirhöndinni, skoraði fjögur mörk í röð og staðan þá orðin 8:3. Bætti íslenska liðið einungis í og komst mest átta mörkum yfir, 15:7, og 16:8, áður en Úkraína skoraði síðasta mark fyrri hálfleiks. Staðan því 16:9 í hálfleik.
Vörnin var afar góð hjá íslenska liðinu í fyrri hálfleiknum auk þess sem Elín Jóna varði átta skot í honum og var með 53 prósent markvörslu. Sóknarleikurinn gekk þá eins og smurð vél þar sem Elín Klara Þorkelsdóttir stýrði ferðinni með myndarbrag.
Ísland hóf síðari hálfleikinn ekki jafn vel og ekki leið á löngu þar til Úkraína var búin að minnka muninn niður í fjögur mörk, 18:14.
Úkraína færði sig enn frekar upp á skaftið og minnkaði muninn niður í þrjú mörk í stöðunni 20:17. Íslenska náði tvisvar sinnum fimm marka forystu, 22:17 og 23:18, í kjölfarið en áfram klóraði Úkraína í bakkann.
Ísland hleypti Úkraínu hins vegar ekki nær en þremur mörkum í síðari hálfleiknum og vann að lokum með þremur mörkum.
Perla Ruth Albertsdóttir var markahæst hjá Íslandi með sex mörk. Elín Jóna endaði á því að verja tíu skot.
Markahæstar í leiknum voru Valeriia Nesterenko og Tamara Smbatian með sjö mörk hvor fyrir Úkraínu.