Manchester United á snúinn leik fyrir höndum í kvöld þegar liðið sækir B-deildarlið Derby heim í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu.
Louis van Gaal segir að tap á móti Derby í kvöld geti þýtt að hann verði rekinn og það þá í fjórða sinn á tímabilinu en Van Gaal var ekki sáttur við skrif ensku pressunnar um síðustu helgi þegar hún sagði að hann hefði boðist til að segja af sér eftir tapið á móti Southampton.
Van Gaal sagði á fréttamannafundi í gær að einn ákveðinn blaðamaður hefði í þrígang „rekið“ hann úr starfi og myndi örugglega gera það aftur í kvöld ef liðið tapar fyrir Derby.
„Kannski getur þú þá skrifað sannleikann,“ sagði Van Gaal.