Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var afar sáttur við að lið hans tryggði sér sinn 13. bikarmeistaratitil og þann sjöunda undir stjórn Frakkans eftir 2:1 sigur á Chelsea á Wembley í dag.
„Við vorum frábærir frá fyrstu mínútu. Þetta lið hefur þjáðst, sameinast og svarað,“ sagði Wenger eftir sigurinn í dag.
„Ég er stoltur af því að hafa unnið sjö af þessum bikarmeistaratitlum. Ég er stoltur af því afreki,“ sagði Wenger.
Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Frakkans eftir 20 ár í starfi knattspyrnustjóra hjá Arsenal. Það kemur allt í ljós í næstu viku segir Wenger.
„Það er stjórnarfundur á þriðjudag. Á miðvikudag og fimmtudag verður þetta allt skýrara,“ sagði Wenger.