Walcott í læknisskoðun hjá Everton

Theo Walcott.
Theo Walcott. AFP

Theo Walcott, leikmaður Arsena,l er á leið í læknisskoðun hjá Everton og hann verður líklega orðinn leikmaður liðsins áður en dagurinn er allur.

Everton og Southampton hafa verið í baráttu við að fá kantmanninn sem hefur átt erfitt uppdráttar hjá Arsenal á tímabilinu. Sky Sports greinir frá því að leikmaðurinn sé á leið í læknisskoðun hjá Everton sem mun líklega þurfa að reiða fram 20 milljónir punda.

Walcott hefur verið í herbúðum Arsenal í 12 ár en hann hóf feril sinn hjá Southampton. Hann hefur spilað 270 deildarleiki með Arsenal og hefur í þeim skorað 65 mörk. Þá hefur Walcott spilað 47 leiki með enska A-landsliðinu og skorað 8 mörk í þeim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert