Chelsea átti ekki neinum vandræðum með að leggja Newcastle að velli er liðin mættust í 4. umferð ensku bikarkeppninnar í fótbolta í dag. Lokatölur í ójöfnum leik urðu 3:0.
Michy Batshuayi skoraði tvö mörk á síðasta korteri fyrri hálfleiks og var aldrei spurning hvort liðið myndi vinna leikinn eftir það. Marcos Alonso gulltryggði sigurinn í síðari hálfleik með marki beint úr aukaspyrnu.
Chelsea hefði getað skorað fleiri mörk og ógnaði Newcastle lítið í gegnum leikinn.
Chelsea | 3:0 | Newcastle | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Michy Batshuayi (Chelsea) á skot sem er varið Leikur á nokkra varnarmenn en aftur ver Darlow frá honum í þröngu færi. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |