Nota okkar eigin verkfæri

Jürgen Klopp.
Jürgen Klopp. AFP

Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool hefur útilokað að félagið eyði þeim peningum sem það fékk fyrir Brasilíumanninn Phillipe Coutinho til leikmannakaupa nú í janúarglugganum.

Liverpool seldi Coutinho til Barcelona fyrir 146 milljónir punda í byrjun mánaðarins en Klopp segir ekki standi til að fá leikmenn í janúarglugganum.

„Þetta snýst um að nota okkar eigin verkfæri, leikmenn og leikaðferðir,“ sagði Klopp við fréttamenn í dag.

„Lausnin er ekki til staðar á leikmannamarkaðnum. Við höfum augu á á honum en það er ekki það að eitthvað sé til staðar þar sem við þurfum að fá. Þess vegna verðum við fyrst að nota leikmenn okkar.“

Liverpool hefur tapað síðustu tveimur leikjum sínum og það gegn botnliðunum í ensku úrvalsdeildinni.

Liverpool beið ósigur á útivelli gegn Swansea fyrir viku síðan í deildinni og tapaði síðan á Anfield gegn WBA í ensku bikarkeppninni. Annað kvöld sækir Liverpool nýliða Huddersfield heim í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert