Pogba getur mætt Sevilla

Paul Pogba og Nemanja Matic á æfingu Manchester Unted í …
Paul Pogba og Nemanja Matic á æfingu Manchester Unted í Sevilla í gær. AFP

Paul Pogba verður í leikmannahópi Manchester United í kvöld þegar liðið sækir Sevilla heim í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu.

Pogba missti af 2:0-sigri United á Huddersfield í enska bikarnum um helgina vegna veikinda, og hefur átt erfitt uppdráttar undanfarnar vikur.

Pogba hefur ekki leikið heilan 90 mínútna leik síðasta mánuðinn, en José Mourinho hefur kosið að taka franska miðjumanninn af velli í tapleikjum gegn Tottenham og Newcastle, og sagt Frakkann einfaldlega ekki hafa leikið nægilega vel að undanförnu.

Ander Herrera, Marcus Rashford og Antonio Valencia, sem allir misstu af bikarleiknum gegn Huddersfield um helgina, ferðuðust með United-liðinu til Sevilla.

Í hinni viðureign kvöldsins í Meistaradeildinni mætast Shaktar Donetsk og Roma í Úkraínu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert