Young með nýjan samning

Ashley Young.
Ashley Young. AFP

Manchester United hefur gert nýjan eins árs samning við Ashley Young og er hann nú samningsbundinn félaginu til ársins 2019.

Young, sem er 32 ára gamall, átti að renna út af samningi í sumar en José Mourinho vildi halda honum í herbúðum félagsins. Young hefur leyst vinstri bakvarðarstöðuna hjá Manchester-liðinu megnið af tímabilinu en hann hefur komið við sögu í 30 leikjum meið liðinu á tímabilinu.

Young hefur verið með betri leikmönnum United á tímabilinu og var um helgina valinn í enska landsliðshópinn fyrir vináttuleikina gegn Hollendingum og Ítölum í næsta mánuði. Hann kom til Manchester United frá Aston Villa fyrir sjö árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert