Boðar komu sína með heilsíðu auglýsingu

Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic. AFP

Zlatan Ibrahimovic boðar komu sína til bandaríska knattspyrnuliðsins LA Galaxy með heilsíðu auglýsingu í bandaríska blaðinu LA Times í dag.

Manchester United og Zlatan sjálfur staðfestu í gær brottför Svíans frá Manchester United sem hann hefur leikið með frá árinu 2016.

Í auglýsingunni er stuttur texti en þar stendur:

„Kæra Los Angeles. Verði ykkur að góðu.“

Á forsíðu blaðsins er mynd af Zlatan í búningi LA Galaxy. Reiknað er með að Zlatan verði kynntur til leiks hjá LA Galaxy eftir helgina en reiknað er með að samningur hans verði til tveggja ára og árslaun muni verða 1,5 milljónir dollara sem jafngildir um 120 milljónum króna.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert