Réðust að liðsrútu City (myndskeið)

Hér sést flösku kastað að liðsrútu City fyr­ir leik­inn.
Hér sést flösku kastað að liðsrútu City fyr­ir leik­inn. AFP

Hluti stuðningsmanna Liverpool setti svartan blett á félagið þegar þeir réðust að liðsrútu Manchester City fyrir leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í knattspyrnu á Anfield í gærkvöld.

Rútan varð fyrir skemmdum en stuðningsmenn Liverpool köstuðu blysum í hana og öðru lauslegu eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði. Forráðamenn Liverpool báðust afsökunar á atvikinu en fastlega má búast við því að Liverpool verði sektað af evrópska knattspyrnusambandinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert