UEFA kærir Liverpool

Það gekk mikið á fyrir utan Anfield-leikvanginn í gærkvöld.
Það gekk mikið á fyrir utan Anfield-leikvanginn í gærkvöld. AFP

Liverpool hefur borist kæra frá evrópska knattspyrnusambandinu vegna ólátanna sem urðu fyrir utan Anfield í gærkvöld fyrir leikinn á móti Manchester City í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Hópur stuðningsmanna Liverpool gerði aðsúg að liðsrútu Manchester City en þeir köstuðu reyksprengjum í átt að rútunni og ýmsu lauslegu, meðal annars flöskum og dósum.

Þá hefur lögreglan í Merseyside óskað eftir því við almenning að senda henni myndir sem teknar voru þegar stuðningsmenn Liverpool réðust að liðsrútunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert