Hafa ekki forskot á United vegna Wembley

Mauricio Pochettino, þjálfari Tottenham.
Mauricio Pochettino, þjálfari Tottenham. AFP

Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Tottenham, segir að liðið muni ekki hafa forskot gegn Manchester United í undanúrslitum enska bikarsins þar sem leikurinn fer fram á Wembley á laugardag en Tottenham hefur leikið heimaleiki sína á þessum þjóðarleikvangi Englendinga á tímabilinu þar sem nýr knattspyrnuvöllur félagsins er ekki tilbúinn.

„Þetta verður öðruvísi þar sem við þurfum að deila með aðstöðunni með Manchester United,“ sagði Argentínumaðurinn á blaðamannafundi í dag.

„Þetta verður sérstakt. Þetta er önnur keppni og þetta verður öðruvísi en þegar við spilum í ensku úrvalsdeildinni. Við höfum ekki forskot og að er heldur ekki hallað á þá,” sagði Pochettino.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert