Hughes verðlaunaður með nýjum samning

Mark Hughes verður áfram hjá Southampton.
Mark Hughes verður áfram hjá Southampton. AFP

Mark Hughes er búinn að skrifa undir nýjan þriggja ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Southampton. Hughes tók við af Mauricio Pellegrino í mars og hélt Southampton í deild þeirra bestu eftir mikla fallbaráttu.

Southampton fékk 11 stig í síðustu 10 leikjum sínum og rétt slapp eftir mikilvægan sigur á Swansea í næstsíðustu umferðinni. „Ég er hæstánægður með að gera nýjan samning. Þetta var það eina sem kom til greina hjá mér eftir góðar síðustu átta vikur hjá félaginu. 

Ég mun halda áfram að gefa allt sem ég á til að ná góðum árangri," sagði Hughes í samtali við heimasíðu Stoke. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert