Læknar á Massachusetts General-sjúkrahúsinu í Boston hafa staðfest að markmaðurinn Loris Karius fékk heilahristing í leik Real Madrid og Liverpool í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu sem fram fór í Kiev á dögunum.
Sergio Ramos, fyrirliði Real Madrid, setti olnboga sinn í andlit markmannsins en Liverpool tapaði leiknum, 3:1. Karius gerði sig sekan um tvenn slæm mistök í leiknum sem kostuðu tvö mörk og stal hann fyrirsögnunum eftir leik með frammistöðu sinni.
Hann er staddur í fríi í Bandaríkjunum og var sendur í heilaskanna þar í landi á dögunum og hafa læknar nú staðfest að leikmaðurinn þjáðist af heilahristing eftir samskipti sín við Ramos. Framtíð hans hjá Liverpool er í mikilli óvissu en margir stuðningsmenn liðsins vilja fá nýjan markmann á Anfield í sumar.