Sá besti í sínum aldursflokki

José Mourinho er mjög ánægður með nýjasta leikmann liðsins, Diogo …
José Mourinho er mjög ánægður með nýjasta leikmann liðsins, Diogo Dalot. AFP

José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, er ánægður með nýjasta leikmann liðsins, Diogo Dalot. Dalot gekk til liðs við United fyrr í dag fyrir 19 milljónir punda en hann kemur til félagsins frá Porto í Portúgal þar sem hann er uppalinn.

„Hann er besti bakvörðurinn í Evrópu í dag í sínum aldursflokki,“ sagði Mourinho. „Hann er gríðarlega hæfileikaríkur varnarmaður og það vantar ekki mikið upp á hjá honum svo hann geti orðið frábær leikmaður fyrir þetta félag.“

„Hann er líkamlega sterkur, gáfaður á velli og tæknilega góður. Hann er mjög vel þjálfaður enda alinn upp hjá Porto sem hefur framleitt frábæra leikmenn í gegnum tíðina. Ég hlakka mikið til að byrja að vinna með honum,“ sagði Portúgalinn að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert