Vorm framlengir við Tottenham

Michel Vorm verður áfram hjá Tottenham á næstu leiktíð.
Michel Vorm verður áfram hjá Tottenham á næstu leiktíð. AFP

Michel Vorm hefur framlengt samning sinn við enska knattspyrnufélagið Tottenham en þetta staðfesti félagið í dag. Framlengingin er til eins árs mun hann því taka slaginn með liðinu í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Þessi 34 ára gamli markmaður hefur verið varaskeifa fyrir Hugo Lloris hjá Tottenham síðan hann kom til félagsins frá Swansea árið 2014. Hann kom við sögu í 11 leikjum með liðinu á þessari leiktíð en Vorm á að baki 15 landsleiki með hollenska landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert