Birkir frá Villa í Middlesbrough?

Birkir Bjarnason spilaði vel á HM.
Birkir Bjarnason spilaði vel á HM. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nokkrir enskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Middlesbrough hafi áhuga á að fá Birki Bjarnason til liðs við sig frá Aston Villa. Bæði lið leika í ensku B-deildinni. 

Footballnewsdaily.net greinir frá þessu í dag. Tony Pulis, knattspyrnustjóri Middlesbrough, hreifst af spilamennsku Birkis á HM í Rússlandi og gæti Villa neyðst til að selja miðjumanninn þar sem fjárhagsstaða félagsins er afar slæm. 

TheMidlandSix, miðill sem sérhæfir sig í íþróttum á miðsvæði Englands, greinir einnig frá þessu í dag og segir fleiri félög hafa áhuga á Birki. Birkir sagði sjálfur í samtali við mbl.is á dögunum að hann ætti von á að vera áfram hjá Villa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert