Tottenham vann upp forskot Barcelona

Son Heung-min skoraði fyrir Tottenham og er hér í baráttu …
Son Heung-min skoraði fyrir Tottenham og er hér í baráttu við Monchu hjá Barcelona. AFP

Barcelona og Tottenham skildu jöfn, 2:2, á alþjóðlega æfingamótinu, International Cup, í Pasadena í Kaliforníu í nótt. Barcelona hafði síðan betur í vítaspyrnukeppni.

Barcelona stefndi í öruggan sigur og var komið í 2:0 eftir hálfltíma. Munir El Haddadi og Arthur skoruðu mörkin eftir sendingar frá Rafinha. En Son Heung-Min og Georges N'Koudou svöruðu fyrir Tottenham með tveggja mínútna millibili seint í leiknum.

Jasper Cillessen tryggði Barcelona sigurinn með því að verja síðustu spyrnu Tottenham frá Anthony Georgiou.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert